Færsluflokkur: Bloggar

Sjóstöng í Ísafjarðardjúpi - Prófun á Contour Roam vélinni.

Ákvað að taka forskot á sæluna og prófa nýja viðbót við græjurnar mínar. En það er forláta Contour vídeóupptökuvél sem festist á hina ýmsu hluti með aðstoð þar til gerðra festinga. Í prufuferðinni notaði ég derhúfufestingu og geri ráð fyrir að ná þeim mun meira af skemmtilegum tökum í sumar með þessari græju.

Contour Roam

 Contour Roam er nýjasta en jafnframt ódýrasta vélin í Contour fjölskyldunni, þar fyrir ofan er GPS og svo +. Contour + er draumavélin, með innbyggðu GPS og þráðlausri sendingu t.d. í snjallsíma via Bluetooth, en hún þarf að bíða betra fjárhags. Það eru nokkur atriði sem ég kann mjög vel að meta við Contour, hún er létt og nett, lagið á henni hentar vel til að festa á hlið og svo má snúa linsunni til hliða ef vélin er t.d. skökk eins og óhjákvæmilega gerist þegar hún er á derhúfu þar sem hausinn er ekki kantaður eða á hlið á bíl osfrv. :) Einnig má stilla víðlinsuna úr 125° í 170° og er gert via snjallsíma eða tölvu, fer eftir tengimöguleikum. Það eru 3 stillimöguleikar á gæðum, 720, 960 og 1080. Einnig er hægt að stilla á sjálfvirka töku mynda, frá 1 sek í 60 sek millibil. Þær myndir eru 5 mpixel.Það eru fjöldamargir aukahlutir til sem hægt er að kaupa en þeir kosta auðvitað og eru að mínu mati í dýrari kantinum en það sama má segja um aðra framleiðendur. Það er því best að velta vel fyrir sér hvernig maður vill helst nota áður en maður fær kaupæði. Ég tók 3 festingar og geri ráð fyrir að það dugi mér vel við flestar aðstæður og einnig fylgdu 2 aðrar festingar með í pakkanum.

 

Ég keypti vélina mína hjá Hátækni sem flytur þær inn en einnig má kaupa þær í Fríhöfninni fyrir þá sem eru á ferð, sjá http://www.hataekni.is/is/vorur/5000/5100/   en athugið að það þarf að fletta á bls. 3 til að sjá vélarnar sjálfar einhverra hluta vegna. Hérna er einnig heimasíða framleiðandans: http://contour.com/products/contour-roam Það má með sanni segja að ég er mjög sáttur við vélina, hefði reyndar vilja sjá minna vesen við að skipta um batterí, þarf að losa skrúfur en það er mjög auðvelt að skipta um minniskort og hún tekur allt að 32gb micro sd kortin. Meðfylgjandi hugbúnaður er dálítið einhæfur og ekki hægt að vinna með myndböndin svo ég sjái en ég nota hvort eð er Pinnacle Studio og hefði ekki breytt því. Ég hefði líka viljað sjá fleiri möguleika á að setja myndböndin á eigin netrásir aðrar en þær sem Contour er með, það gæti þó verið að það sé hægt en hef ekki fundið það. Handfrjáls búnaður gerist ekki einfaldari og betri, vélin hefti mig ekkert þegar ég var að veiða eða brölta um í þröngum bátnum með 5 aðra innaborðs, takkinn sem kveikir og slekkur er stór og auðvelt að nota, einnig er alveg brilliant laser stilling á vélinni sem virkar þannig að þegar þú ert búinn að koma græjunni fyrir þá ýtir þú á takka aftan á henni og þá sést leiser strik sem þú getur notað til að fínstilla miðað við sjónlínu þína. Alveg bráðsniðugt.


Í tilefni af nýju veiðiári...

Veiðimenn...hlustið á þetta lag :)


Breiðdalsá - Dagar 34-37

Og af varð, að ég fengi að prófa þessa frábæru laxaveiðiá, Breiðdalsá. Ég hef nokkrum sinnum keyrt framhjá henni og orðið hugsað til þess hvenær að því kæmi. það má með sanni segja að á hafi skipst skin og skúrir í ferðinni. En fyrst var rjómablíða og ekki gára en svo skall á fyrsta alvöru haustlægðin með rigningu og svo snjókomu.

Síðasta daginn var alveg snarbrjálað veður en dagurinn var aldeilis ekki tíðindalaus, því rétt um hádegi lá lax í Tinnudalsá og tveimur tímum síðar hreindýr á Öxi :) Ekki slæmt það. Reyndar vor 23 metrar og smá snjókoma á heiðinni þannig að skotið var ansi erfitt og örlítið aftarlega á dýrinu en það slapp og engin skemmd á skrokknum. Ágætt miðað við að vera með 200m + færi í hávaðaroki.


Áin gaf vel af sér og voru menn að moka upp laxi, sérstaklega ansi lunknir spánverjar sem notuðust við litla spúna en mínir menn drógu 2 væna í klakkystur.

  Hér er smá myndband frá ferðinni, en eins og sést þá var veðrið að spila stóra rullu í þessari ferð.


Langadalsá í Ísafjarðardjúpi - Dagar 33 og 34

Af fluguveiðiám að vera þá er Langadalsá einstaklega skemmtileg. Ólíkt systuránni Hvannadalsá, þá er enginn foss í Langadalsá, þær eru í raun eins og svart og hvítt. Langadalsá liðast niður Langadalinn í beygjum og fljótum, nokkrum flúðum og gili. Umhverfið í dalnum er mjög fallegt og húsið er alveg ágætt.

Hér má svo sjá einn af minni löxunum í ánni, 67 sm úr Hesteyrinni.

Langadalsárlax ásamt fallegu Einarsson veiðihjóliEn svo við skoðum nú staðsetninguna á landinu, þá er hún um 300 km frá Reykjavík, eða um 50 km norðan við Hólmavík og er farið yfir Steingrímsfjarðarheiðina. Áin á sameiginlegan ós með Hvannadalsá.

Það var slatti af fiski í ánni og hollið fékk 5 fiska á kvöld- og morgunvakt sem er ágætt miðað við árstíma myndi ég halda.

Hægt er að nálgast upplýsingar um ánna, kort og fleira hér: http://www.agn.is/veidistadir1.asp?element_id=646&cat_id=1294

Það komu fiskar upp úr Hesteyrinni, Beygjunni, gilinu, Klapparhyl og Túnhyl en við misstum einnig tvo í Hesteyrinni.

Holan

Hérna er mynd tekin ofan í ánni í Holunni, ég missti mig aðeins í neðansjávamyndatökum :)

Hérna er svo vídeófærsla að sjálfsögðu :)


Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi - Dagar 31 og 32

Það má með sanni segja að ferðin í Hvannadalsá hafi verið viðburðarrík og misjöfn en byrjum á staðsetningunni. Hvannadalsá er í um 300 km fjarlægð frá Reykjavík, eða 50 km norðan við Hólmavík og er áin sem sést á vinstri hönd þegar komið er niður af Steingrímsfjarðarheiði á leið norður.

Hvannadalsá og Langadalsá eiga sameiginlegan ós. Laxinn í ánni er sagður auðþekkjanlegur á því hversu sver hann er og eru nokkrir fossar sem hann þarf að komast upp til þess að ná ofarlega í ánna. Fyrsti fossinn af einhverri stærð er Djúpifoss og ber hann nafn með rentu, því í honum er alveg svaðalegur hylur og alveg ótrúlegt að setja í fisk þarna ef hann ákveður að kafa, því maður trúir varla hversu mikið af línu fer af hjólinu, beint niður.

DjúpifossÞað var nóg af fiski í ánni, og sást lax á flestum merktum veiðistöðum. Sérstaklega ber að nefna Djúpafoss (Árdalsfoss), brúnna (Rauðabergsfljót), Imbufoss og Hellufoss. Ég sá ekki mikið af fiski á breiðunum en á nokkrum stöðum voru þeir neðarlega í straumnum. Ég fór ekki ofar en Hellisfoss og ekki neðar en Djúpafoss og get því ekki fjallað um þá staði.

Djúpifoss skilaði tveimur góðum tökum og einum laxi. Ég setti í all rosalegan fisk um klukkutíma áður en seinni vaktinni lauk en flugan lak af þegar ég var að byrja að landa honum... Frown Ég giska á að hann hafi verið yfir 20 pund og það var ekki sá eini sem ég sá af þeirri stærðargráðu í ánni.

Ég setti auðvitað saman smá vídeó úr ferðinni og þar er eitthvað blaðrað og sjást þar einnig nokkrir laxar :)

Veiðistaðalýsingu má nálgast hér: http://www.agn.is/veidistadir1.asp?element_id=2449&cat_id=1294 og kort af ánni eru hér:  http://www.agn.is/upload/files/hvannadalsa_a.pdf og hér: http://www.agn.is/upload/files/hvannadalsa_b.pdf

Ég veiddi hálfan og hálfan og má eiginlega segja að fyrri vaktin hafi farið í að skyggna staði og kynnast þeim. Áin er frekar nett á köflum og það þarf að passa hvernig maður kemur að veiðistöðunum svo maður styggi ekki fiskinn, hann lá oft öðruvísi en ég hefði búist við.

 


Ósá - Dagur 28

Sjóbleikjur úr ÓsánniEins og síðustu daga hef ég haldið mig í heimabyggð. Eftir að hafa reynt við árnar í Syðridal er komið að Ósánni sjálfri, sem rennur úr Syðridalsvatni og niður í sjó. Sjóbleikjan er málið þarna en einnig veiðist stöku lax og staðbundin bleikja.

Morgunvaktin gaf sex þokkalegar bleikjur en sú stærsta slapp auðvitað og sleit 5 punda taum. Það er í annað skiptið sem það gerist á stuttum tíma og ég þarf greinilega að hafa sterkara í þessu Wink

Þær tóku áberandi best svartan vinylribb með gráum kraga og silfurkúluhaus, stærð 14 en einnig tóku tvær rauðan vinylribb með gullkúluhaus. Það var mikið af minni fiski sem fékk líf og í sumum hyljunum á í nánast hverju kasti. Allt var þetta veitt upstream með tökuvara.

SyðridalsvatnHérna er svo kort af svæðinu en þarna sést einnig hluti af Bolungarvík og höfnin. 

Hylirnir sem ég veiddi eru um það bil frá vatninu og um 500 metra niðureftir.

Hér fyrir neðan er svo vídeó frá morgninum.

 


Syðridalsvatn - Dagar 25-27

SyðridalsvatnÉg hef áður fjallað um Syðridalsvatn sem prýðir Syðridal í Bolungarvík.

Ósáin liggur frá sjó upp í vatnið og eru veiðileyfi seld þar sérstaklega í Shellskálanum sem blasir við þegar komið er inn í þorpið.

Fyrir vatnið og árnar sem liggja í það gildir veiðikortið: www.veidikortid.is.

Ósáin er vinsæl sjóbleikjuá og gengur töluvert af bleikju upp í vatnið og áfram í árnar upp með dalnum. Einnig veiðast stöku laxar á vatnasvæðinu en má varla gera ráð fyrir slíkum feng.

Vatnið er þokkalega stórt og margir ágætir veiðistaðir við það en sérstaklega má nefna þar sem ferskt vatn rennur í það. 

Einnig eru nokkrir góðir hylir í ánum sem renna í vatnið og fékk ég nokkrar flottar sjóbleikjur undanfarna daga og tók einn unglingurinn minn 6 bleikjur upp úr sama hylnum og sú stærsta var um 3,5 pund. 

Eins og sjá má í vídeóinu og hér fyrir neðan þurfa hylirnir ekki að vera stórir, t.d. hérna sleit ein bleikjan 5punda girni, sú var bara nokkuð stór Wink

Sjóbleikjur í hyl


Arnarvatnsheiði - Dagar 21-24

Það má með sanni segja að Arnarvatnsheiðin hafi tekið breytingum frá því við félagarnir úr árgangi ´73 frá Patró fórum þangað fyrst. Þá var bleikjan allsráðandi, Skammáin var að gefa tugi bleikja á dag, allt að 5 punda dreka. Nú er öldin önnur og urriðinn orðinn mesti aflinn, Austuráin er reyndar söm við sig þó urriðinn sé heldur minni í ár en venjulega en ferðin er samt sem áður sú skemmtilegasta á árinu.

Arnarvatn Stóra séð frá SesseljuvíkÞað er alveg óborganlegt, uppátækin og vitleysan sem gerist á heiðinni og mann fer að hlakka til næstu ferðar á leiðinni niður á Laugarbakka.

Við fengum marga góða í Sesseljuvíkinni á föstudagskvöldinu og hérna er smá miðnætursólarstemning:

Hérna er smá vídeó úr ferðinni en það var heldur dræmt laugardag og sunnudag sökum hvassviðris.

 

 

 


Geiradalsá - Dagur 20

Að landa laxi með fjarkanum :)Eftir að hafa slakað á í Bjarkalundi í einn dag var haldið aftur í Geiradalsá. Fyrri dagurinn gaf ágætis vonir því við misstum 3 laxa, náðum einum og svo 2 vænum sjóbleikjum. En raunin varð önnur því þeir laxar sem voru í neðsta hylnum, lentu í ormaveislu hjá hollinu sem var í millitíðinni.

það er ekkert við því að segja enda er maðkurinn leyfður í ánni.

Hérna er bloggfærslan fyrir fyrri daginn þar sem nákvæmlega ekkert markverk gerðist á veiðidegi 20 annað en það að bóndinn á Ingunnarstöðum kom til okkar þegar við vorum að taka saman og tjáði okkur að "það hefði verið kvartað undan okkur þar sem við keyrðum eftir slóða meðfram túni sem ekki var búið að slá". En það var frekar vinaleg ábending miðað við fyrri samskipti Cool

Dagur 18 í Geiradalsá: http://gustig.blog.is/blog/gustig/entry/1182433/  


Bjarkarlundur - Dagur 19

Bjarkalundur Við Bjarkalund er hótel sem frægt er orðið fyrir Dagvaktina, en hótelið er jafnframt elsta sumarhótel landsins.

Margir koma þar við til að skoða pönnuna frægu og njóta veitinga hjá Kollu og Oddi, en það sem margir vita ekki er að vatnið við Bjarkalund geymir ágætis bleikjur og urriða.

Hér er örmyndband frá veiðiferð þangað, en veiðin var að þessu sinni stunduð frá báti og var veðrið eiginlega allt of gott til að gera annað en slaka á og njóta dagsins.

Ekki var mikið um veiði að þessu sinni en það var meira mér að kenna en fiskinum LoL Við höfðum fréttir af bleikjum upp undir 5 pund fyrr í sumar, þannig að það er bara að reyna aftur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband