Hlíðarvatn í Selvogi
11.7.2013 | 11:02
Skrapp í örskotsstund í Hlíðarvatn í Selvogi og það var gaman. Fékk 8 bleikjur á um 4 tímum í grenjandi rigningu allan tíman. Hirti fjórar og voru þær 38, 40, 41 og 45 sm langar. Fékk nokkur högg að auki en missti enga í þetta skiptið sem ég er nú barasta nokkuð ánægður með. Þær töku púpur með svörtu og hvítu í, brúnar, peacock, Pheasant tail midge fluguna sem ég hef verið að hnýta og eitthvað fleira. Í raun tóku þær allt sem ég setti undir þannig að það er erfitt að benda á eina flugu. Ég fékk 2 bleikjur í Botnavík, 2 í Innranefi og 4 í Hjalltanga. Ég var einnig lengsta tímann í Hjalltanga því þar er gott að sitja og kasta Skemmtilegur dagur og verst að hafa ekki lengri tíma og betra veður, en svona er þetta nú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ósa í Bolungarvík 2013
29.6.2013 | 23:16
Jæja, fyrsta veiðimyndbandið með hjálp fjarstýrðra upptökutækja eru veruleiki. Ósáin lá best við höggi til að prufukeyra Easy Star II vél með Horizon HD upptökuvél og þráðlausum vídeósendi. Töff stöff og mjög skemmtilegt að sjá veiðisvæðin frá þessu sjónarhorni. Nú er bara að halda áfram að þróa þetta og reynslan mun væntanlega auka gæðin þegar fram líða stundir.
Skrapp með nafna mínum seinni vaktina og því miður voru veðurskilyrðin ekki alveg upp á sitt besta, rok og rigning, en við fengum eina væna bleikju og nokkrar sluppu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laxá í Laxárdal - dagur hinna misstu fiska...
28.6.2013 | 14:13
Smá vorkun er í lagi núna, ég missti 3 í röð í Laxárdalnum, allt fiska sem tóku vel í og allir tóku þeir sömu fluguna, Pheasant Tail.
En veðrið var frábært og maturinn í veiðikofanum fínn. Ekki var verra að hitta skvísurnar í Kastað til bata en þær voru þarna að skemmta sér konunglega enda gædarnir ekki af verri endanum, snillingar þar á ferð.
Það var ánægjulegt að koma að upphafi Kastað til bata á Íslandi, en hugmyndin kom upphaflega frá formanni stuðningsfélagsins Stóma árið 2007, honum Kristjáni Frey, sem sýndi mér upplýsingar frá Casting for Recovery sem hefur náð góðum árangri í Bretlandi og Bandaríkjunum, og urðum við ásáttir á að þetta væri nú ansi skemmtileg hugmynd að yfirfæra verkefnið á Ísland. Kastað til bata nafnið kom nú bara sjálfkrafa þegar ég var að skrifa yfirskriftina á kynningu fyrir aðila innan Krabbameinsfélagsins. Ég fór með það sama til hans Halla Eiríks hjá SVFR og tóku þeir höfðingjar mjög vel í þessa hugmynd og hafa stutt verkefnið með dáð síðan. Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins og hún Ragnheiður Alfreðs hélt síðan utan um verkefnið frá árinu 2010 með vali á þátttakendum. Samhjálp kvenna tók verkefninu mjög vel strax í byrjun og sá þvílíkt tækifæri þetta er fyrir þær konur sem hafa farið í slíka meðferð og má segja að framsýni forsvarsmanna félagsins hafi sannarlega gefið af sér.
Furðulegt nokk, þá var þetta kveikjan að því að ég fór að veiða á flugu en hann Sigurður Pétursson málari átti stóran þátt í því enda studdi hann við upphaf verkefnisins með því að halda fluguhnýtinganámskeið í salarkynnum Krabbameinsfélagsins með stuðningi SVFR árið 2007 ef minnið svíkur mig ekki.
Kastað til bata er árangursrík leið til þess að hjálpa konum að byggja upp vöðva eftir meðferð við brjóstakrabbameini og fluguköst hafa reynst ákaflega góð leið við slíka enduruppbyggingu. Ég vona sannarlega að ég eigi eftir að rekast á framtíðarhópana því þar fara persónur sem kunna að njóta lífsins og árbakkans á við reyndustu veiðisnillinga.
Ég man enn þegar ég var að hringja og óska eftir stuðningi við verkefnið, fólk varð ansi hissa en kom nú aðeins til þegar málin voru útskýrð :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)