Vatnasvæði Lýsu og Hraunsfjörður - Dagur 9 og 10.

Fórum félagarnir Danni og Raggi á Snæfellsnesið á sunnudag. Tókum tjaldið og góða skapið ásamt nýjum veiðifélaga, labradornum Bósa.

Við tókum stefnuna á Hraunsfjörð með þá von í brjósti að bleikjan væri í tökustuði og það var hún svo sannarlega á mýið, en ekki flugurnar okkar. Það var gríðarlega mikil fluga í firðinum og tökur alls staðar en mjög erfitt að setja í fisk. Prófuðum allt frá nobblerum yfir í pínulitlar svartar þurrflugur. 

Danni náði tveimur á Mobuto en svo ekki söguna meir. Ég reyndar veiddi eina flundru sem tók peacock og svo náði ég einni ágætri bleikju sem sleit!

cimg0720.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Danni og Bósi í Hraunsfirðinum.

Síðan var tjaldað og það var auðvitað vesen á Ragga, hann gleymdi svefnpokanum sínum og endaði á að sofa í bílnum :)

Morguninn eftir var sama sagan, bleikjan var þarna en tók ekkert. Þá ákváðum við að keyra vestur fyrir nesið, yfir Fróðarheiði og kíkja á vatnasvæði Lýsu.

Í stuttu máli fann Danni bleikjur í Reyðarvatni og við náðum ca 6 mjög vænum á um 2-3 tímum. Ég náði 4 en Raggi var alveg ótrúlega óheppinn, þær bara vildu ekki taka hjá honum.

Eftir það var lagt af stað heim og við komnir í bæinn um 19.30. Frábærlega skemmtilegur túr.

Smá youtube myndband hérna, passið ykkur að lækka í hátölurunum.

cimg0728.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bleikjurnar sjást ekki vel á myndinni en þetta voru mjög flottar bleikjur, örugglega um 2,5 pund meðalþyngdin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Geggjuð myndataka, hvaða snillingur tók þetta upp?

Daniel (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 20:31

2 identicon

Gaman að þessu, en tónlistin við myndbandið er of hátt stillt að mínu mati, mætti meira að segja alveg sleppa henni.

Gútaf Gústafsson (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband