Langá á Mýrum - dagar 22 og 23
19.8.2012 | 18:23
Jibbí, alltaf gaman að veiða Langá á Mýrum. Veiddi kvöld- og morgunvakt og teljast það 22. og 23. veiðidagar sumarsins. Ég var svo heppinn að koma að ánni eftir rigningar og áin að jafna sig, þó hún hafi verið ansi hröð.
Kvöldvaktin var tíðindalaus þó lax hafi sést hér og þar en morgunvaktin var mjög góð. 3 tökur, 2 láku af á fjallinu fyrir neðan vaðið við #80 Hólmatagl og svo á #73 Hellisbreiðu, en 1 náðist í #60 Hólsbreiðu. Ég var að prufukeyra nýja stöng, Guideline Exceed #6. Hún reyndist frábærlega og ekki skemmdi Einarsson hjólið og ég nota með henni.
Sá tók svarta Frances micrótúpu neðst á veiðistaðnum beint fyrir framan þennan stein sem sést á myndinni. Þeir sem láku af tóku Collie Dog #14 og Collie Dog túpu (Gunnsó) 1/2 tommu.
Eins og fram kom hér fyrir ofan var áin dálítið hröð og örlítið lituð þannig að legustaðirnir voru á öðrum stöðum en maður á að venjast. Í flestum tilfellum frekar neðarlega á veiðistöðunum og það þarf klárlega að taka það með í reikninginn að veiða sig vel niður staðina við slíkar aðstæður. En þetta voru frábærar vaktir við yndislega á í góðum félagsskap. Svæðið er í sölu hjá SVFR og má finna veiðileyfi hér: http://svfr.is/veidileyfi/ og lýsingu á svæðinu hér: http://svfr.is/?PageId=0938759e-06b3-458f-b695-e7635a393fc3
Veiðifélagi minn í þessari ferð var Gunnar Már Hauksson veiðimaður og þekkir hann ána vel. Ég tók stutt viðtal við Gunnar Má eftir morgunvaktina þar sem við vorum staddir í Hólaskjóli á Litla Fjalli og ég set það inn fljótlega.
Það má benda á að til er veiðileiðsögn um svæðið og hana má finna hér: http://langa.is/pdf/langa.pdf
Setti inn myndband að sjálfsögðu og hér er það:
Ekki gleyma að læka á Fésinu:
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.